Kúru Bangsarnir

Njalli og Ingunn Ýr

24.02.2008 18:21:19 / ingunnyr

Sunnudagurinn 24. febrúar

Hæhæ...
Í dag er alþjóðlegi konudagurinn og í tilefni dagsins fékk ég rós frá mínum ydislega kærasta :d. Takk Njáll minn ég elska þig útaf líf mínu ;). Er lífið ekki frábært, ég segi það nú bara :haha:. Annars er bara allt gott að frétta, febrúar mánuðurinn er að ljúka og mars mánuðurinn er því að hefjast 8). Í mars á ég og Njáll Aron afmæli og fer því að styttast í bílprófið hjá okkur 8|. Það verður fjör :d.
Síðan ér páskafríið í skólanum að byrja, eða það er að segja í mars ;), 14. mars er síðasti kennsludagurinn og byrjar skólinn svo ekki aftur fyrr en 26. mars :p. Þvílíkur munur að vera komin í framhaldsskóla, lengri frí og svaka stuð ;). Ekk má svo gleyma því að ég fer til Ítalíu í heimsókn til Adólfs stóra bróður og Söru mákonu um páskana 8). Það verður fjör, ég er nú alveg viss um það ;).
En ég ætla að segja þetta gott í dag, endilega kvittið í gestabókina eða commentið hjá okkur :) og lifið deginum eins og hann sé ykkar síðasti :haha:.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 13:11:48 / ingunnyr

Fimmtudagurinn 21. febrúar

Ég fann einn góðan brandara sem allir ættu að lesa :). Njótið vel og munið að kvitta :d.

Heiða var 10 ára gömul og forvitin eins og aðrar stelpur á hennar aldri.

Hún hafði stundum heyrt stærri stelpur tala um að vera með strák og þegar hún var búin að brjóta heilann um það í nokkurn tíma, hvernig það færi fram, fór hún til móður sinnar og spurði hana um þessa hluti.
Það varð lítið um svör hjá mömmunni, sem roðnaði bara og fór hjá sér.
Í staðinn ráðlagði hún Heiðu að fela sig bak við gluggatjöldin í herbergi stóru systur sinnar, þegar hún kæmi heim með strák næst.
Heiða gerði það og daginn eftir lýsti hún atburðarásinni fyrir mömmu sinni.

Systa og vinur hennar sátu saman og töluðu í smástund, en þá stóð hann upp, slökkti á flestum ljósum og fór að kyssa hana og faðma hana að sér.
Ég held að Systa hafi verið hálf lasin, því að hann fór með höndina undir blússuna hennar, til að finna hjartað, alveg eins og læknirinn gerir, nema hvað hann er ekki eins klár og læknirinn.
Hann ætlaði aldrei að finna hjartað í henni.
Kannski hefur hann verið eitthvað lasinn líka, því að eftir smástund voru þau bæði farin að mása og stynja.
Honum hlýtur að hafa verið kalt á hendinni, því að hann brá henni undir pilsið hennar.
En þá versnaði Systu bara.
Hún fór að andvarpa og stundi þungan.
Svo engdist hún sundur og saman og renndi sér neðar í svefnsófann.
Það var þá sem hún fékk hita, því hún sagðist vera orðin sjóðandi heit.
Loksins komst ég að því hvers vegna þau urðu svona veik.
Lifandi silungur hafði einhvern veginn komist inn undir föt stráksins.
Svo stökk silungurinn út úr buxunum hans og stóð út í loftið, ábyggilega 20 - 25 sm langur.
Ég get svarið það.
Strákurinn greip utan um hann til hann slyppi ekki burt.
Þegar Systa sá hann varð hún skelfingu lostin.
Hún glennti upp augun, munnurinn seig galopinn niður og hún fór að ákalla Guð og svoleiðis.
Hún starði á fiskinn og sagðist aldrei hafa séð neinn svona stóran. Hún ætti að sjá suma af silungunum, sem við pabbi veiddum í sumar.
En hvað um það.
Systa hleypti í sig kjarki og reyndi að bíta hausinn af fiskinum.
Allt í einu heyrðist undarlegt hljóð í henni og hún lét hann lausan.
Hann hefur líklega bitið hana til baka.
Þá greip hún utan um silunginn með báðum höndum og hélt honum föstum, meðan strákurinn tók munnkörfu eða eitthvað svoleiðis upp úr vasanum og renndi henni yfir hausinn á kvikindinu, svo að það gæti ekki bitið hana aftur.
Þá lagðist hún á bakið og glennti sundur lappirnar til að hún gæti klemmt silunginn saman og vinurinn hennar hjálpaði til með því að leggjast ofan á hana þar sem hann lá milli fótanna á henni.
En silungurinn barðist upp á líf og dauða.
Systa fór að kveina og veina og strákurinn átti fullt í fangi með að halda sér ofan á henni.
Ég held að þau hafi ætlað að drepa silunginn með því að kreista hann á milli sín.
Eftir svolitla stund hættu þau að hristast til og gáfu frá sér heilmikið andvarp.
Strákurinn stóð upp og mikið rétt, hann var búinn að drepa silunginn.
Ég vissi að hann var dauður vegna þess að hann hékk máttlaus út úr buxnaklaufinni og eitthvað af innyflunum hékk út úr honum.
Systa og strákurinn voru náttúrulega dálítið þreytt eftir bardagann, en þegar þau voru búin að hvíla sig dálitla stund fóru þau að gæla hvort við annað.
Hann byrjaði aftur að faðma hana og kyssa.
Og svei mér þá, silungurinn var ekki alveg dauður.
Hann byrjaði að tútna út og þaut upp enn einu sinni, svo þau fóru aftur að slást við hann.
Þessir fiskar hafa ábyggilega níu líf, eins og kettirnir.
Í þetta sinn reis Systa upp og reyndi að kála silungnum með því að setjast ofan á hann. Eftir hálftíma baráttu tókst þeim að drepa silunginn.
Ég veit að hann var endanlega dauður, vegna þess að strákurinn fletti roðinu af honum og henti því í klósettið........


Mamma, af hverju ertu svona skrítin í framan?

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 19:55:09 / ingunnyr

Sunnudagurinn 17. febrúar

Sæl verið...
Jæja þá ætlum við byrja upp á nýtt með þessa síðu enn og aftur ;). Eins og þið sjáið eru nýustu fréttirnar frá Gras.is komnar á okkar síðu, nýjustu sketsarnir frá b2.is og topp tónlist frá tónlist.is :d. Já þetta er orðið ansi tæknilegt... Svo reynum við að vera dugleg að koma með blogg :). Já á meðan ég man þá er ég komin með myspace síðu,
www.myspace.com/ingunnyr91 endilega addið mér inn hjá ykkur sem eiga síðu. Annars er bara allt gott að frétta hjá okkur, skólinn á fullu og svo fer að styttast í bílprófið 8|. En þá segi ég þetta nóg í bili, verið sæl og munið að kvitta :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 17866
Dagsetning
9. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan